Áfram sígur íshellan

Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls.
Í forgrunni sjást Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls. mbl.is/Ragnar Axelsson

Íshellan yfir Grímsvötnum hafði seint í gærkvöldi sigið um rúma tuttugu metra frá því fyrst fór að bera á sigi fyrir um tíu dögum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Þetta sýndu síðustu mælingar en áfram verður fylgst með mælingum í dag. Vatnamælingamenn Veðurstofunnar mældu rennsli í Gígjukvísl um klukkan átta í gærkvöldi og nam það þá um 1.140 rúmmetrum á sekúndu.

Rafleiðni í ánni eykst

Rennslið er tífalt á við venjulegt rennsli árinnar á þessum árstíma.

Rafleiðni, sem gefur til kynna magn hlaupvatns í ánni, hefur einnig aukist síðustu daga. Gas mælist í litlu magni við jökulsporðinn og þykir vel innan hættumarka.

Gosið hefur á fimm til tíu ára fresti úr Grímsvötnum og hefur vísindamönnum komið saman um að mælingar sýni að Grímsvötn séu tilbúin til að gjósa, eins og Morgunblaðið hefur áður fjallað um.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að ekkert sé þó hægt að fullyrða um að eldgos verði samfara þessu hlaupi og fylgjast þurfi grannt með skjálftavirkni í Grímsvötnum sem geti gefið vísbendingar um að gos sé yfirvofandi.

Í gærkvöldi hafði engin skjálftavirkni enn mælst. Árið 2004 gaus í Grímsvötnum eftir að jökulhlaup þaðan var komið vel af stað. Síðast gaus árið 2011, en þá um hálfu ári eftir jökulhlaup.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert