Kemur sér illa fyrir hagkerfið

Sigurður Hannesson.
Sigurður Hannesson.

„Það er mikið umhugsunarefni að þessi staða sé komin upp,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, en Landsvirkjun tilkynnti í gær að hún hygðist skerða þegar í stað afhendingu raforku til stórnotenda sem eru með skerðanlega skammtímasamninga, en þar á meðal eru fiskimjölsverksmiðjur, gagnaver og álver.

Þá hefur Landsvirkjun einnig hafnað öllum óskum nýrra viðskiptavina um orkukaup vegna rafmyntagraftar. Upphaflega átti skerðingin að hefjast í janúar, en í tilkynningu Landsvirkjunar segir að nokkrar ástæður séu fyrir því að hún komi fyrr til framkvæmda, en fyrirtækið segist meðal annars hafa fullnýtt getu flutningskerfisins til að flytja orku frá Norðausturlandi til álagspunkta á Suðvesturlandi.

Sigurður segir að þessi staða komi sér sérstaklega illa á þeim tíma sem hrávöruverð sé hátt, með hliðsjón af því að græn orkuskipti eru á næsta leiti. „Skerðingin kemur illa við íslenskt efnahagslíf og við hagkerfi Íslands,“ segir Sigurður, og bætir við að hún muni draga úr framleiðslu og verðmætasköpun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert