Beint: Úrslit samkeppni vegna Fossvogsbrúar

Fossvogsbrúin verður um 270 metra löng og mun tengja saman …
Fossvogsbrúin verður um 270 metra löng og mun tengja saman Reykjavík og Kópavog.

Tilkynnt verður um úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog í húsnæði Háskólans í Reykjavík klukkan 11 í dag.

Bygging brúar yfir Fossvog er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, sveitarfélaganna Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar, og Betri samgangna ohf. Vegagerðin bauð keppnina út á Evrópska efnahafssvæðinu fyrir hönd samstarfsaðilanna.

Hér fyrir neðan má fylgjast með fundinum í beinu streymi:

Ætlað að styðja við vistvænar samgöngur

Brú yfir Fossvog er hluti af 1. áfanga vegna uppbyggingar borgarlínunnar samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Markmiðið með gerð brúarinnar er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs. Brúnni er ætlað að styðja við vistvæna samgöngukosti á svæðinu, ásamt því að stytta ferðalengdir, dreifa umferðarálagi og styðja við umferð gangandi og hjólandi, að því er segir í tilkynningu.

Hönnunarsamkeppnin var opin og í tveimur þrepum. Nafnleyndar var gætt á báðum þrepum. Fimmtán tillögur bárust í keppnina og voru þrjár þeirra valdar áfram á seinna þrep til að þróa tillögur áfram og skila inn í lok annars þreps.

Í dag verður tilkynnt hver þessara þriggja tillagna ber sigur úr býtum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert