Ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi ekið bifreið á …
Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi ekið bifreið á 15-20 km hraða út af bílaplani við Vindakór þrátt fyrir að Daníel héldu báðum höndum í hliðarrúðu á bílnum. mbl.is/Árni Sæberg

Rúmenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi og að hafa látið farast fyrir að koma manni til bjargar, þegar Daníel Eiríksson lést í Kópavogi í byrjun apríl á þessu ári.

Maðurinn er til vara ákærður fyrir hættubrot og að hafa látið farast fyrir að koma manni til bjargar.

Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi ekið bifreið á 15-20 km hraða út af bílaplani við Vindakór þrátt fyrir að Daníel héldu báðum höndum í hliðarrúðu á bílnum og þar af leiðandi dregist eða hlaupið með tæpa 14 metra þar hann til hann féll í jörðina.

Í framhaldinu hafi ákærði ekið af vettvangi án þess að huga að Daníel og með þeirri háttsemi stofnaði hann lífi og heilsu Daníels í augljósan háska, að því er segir í ákærunni

Afleiðingar þessa alls séu þær að Daníel lést á sjúkrahúsi daginn vegna höfuðáverka sem hann hlaut við fallið daginn áður.

Fjölskylda Daníels krefur manninn um 15 milljónir króna í skaða- og miskabætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert