Unnu samtals 57 milljónir

Talsmenn Íslenskrar getspár segja að það hafi vart verið þverfótað fyrir nýjum milljónamæringum í höfuðstöðvum félagsins undanfarna daga. Segir af karlmanni af sextugt sem vann 11,5 milljónir í Víkinglotto, ungum tónlistarmanni sem vann einnig 11 milljónir og loks af hjónum sem unnu tæpar 35 milljónir.

Fram kemur í tilkynningu að eldri maðurinn, sem sé búsettur í Reykjanesbæ, hafi heyrt af því á kaffistofunni í vinnunni að heppinn Íslendingur hefði hreppt 2. vinning í Vikinglotto. Í spjalli við vinnufélagana samgladdist maðurinn vinningshafanum innilega yfir að hafa hreppt slíkan vinning í aðdraganda jólanna en datt um leið í hug að athuga sinn eigin miða,  sem þá reyndist sjálfur milljónamiðinn.

Ungi tónlistarmaðurinn segir að vinningurinn muni koma sér einstaklega vel þar sem hægt sé að láta drauminn um alls konar nýjar græjur rætast þótt undanfarin misseri hafi ekki verið sérlega hagfelld tónlistarfólki.

Þá segir að stærsti vinningurinn hafi þó fallið í skaut hjóna á besta aldri sem unnu þrefalda Lottópottinn 27. nóvember. Dráttur varð á því að vinningshafarnir fengu góðu fréttirnar þar sem þau kaupa alltaf tveggja vikna miða á einhverjum af sínum þremur uppáhalds sölustöðum og láta um leið athuga með útdrætti síðustu vikna. Vinningsmiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í þetta skipti og færði þeim hjónum tæpar 35 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert