Brennur felldar niður á höfuðborgarsvæðinu

Á fundi framkvæmdaráðs almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins í dag var tekin ákvörðun um að fella niður áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu um komandi áramót.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að núverandi fjöldatakmarkanir vegna sóttvarnaaðgerða miðast við 50 manns og mikið er um smit í samfélaginu.

Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra dragi þær að sér fjölda fólks og það sé mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.

„Sveitarfélögin átta sig á því að þessi ákvörðun getur valdið vonbrigðum margra en það er mikilvægt fyrir okkur að vinna að því saman að fækka smitum, m.a. með því að forðast mannmergð og leggja áherslu á fagna hátíðunum í minni hópum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert