Óvissustig endurskoðað á mánudag

Áfram verður unnið undir óvissustigi og það síðan endurskoðað á …
Áfram verður unnið undir óvissustigi og það síðan endurskoðað á mánudag. AFP

Ekkert atvik hefur verið tilkynnt um innbrot inn í kerfi með Log4j veikleikanum og starfa allir ómissandi innviðir og þjónusta eðlilega og eru ekki skert eða takmörkuð á þessum tímapunkti. Áfram verður unnið undir óvissustigi og það síðan endurskoðað á mánudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild lögreglunnar. Þar segir einnig að rekstraraðilar vinni ennþá að málinu og bregðist við nýjum upplýsingum og uppfærslum eftir því sem þær berast.

Fylgst verður áfram náið með kerfum og hegðun þeirra ásamt þróun veikleikans á heimsvísu og hvaða áhrif hún gæti haft.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert