Fjölmargir veitingastaðir óska eftir undanþágu

Alþingi við Austurvöll.
Alþingi við Austurvöll. mbl.is/Hari

Formleg beiðni um undanþágu frá sóttvarnarreglum sem taka eiga gildi nú að miðnætti hefur verið send á Alþingi, til þingmanna allra og Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra af Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT). 

Fram hefur komið að undanþága fékkst yfir tónleikahald Bubba Morthens á Þorláksmessu. Þá segir Vísir frá því að tónleikahald Emmsjé Gauta hafi einnig fengið undanþágu og verði fram haldið á Þorláksmessu. 

Hafa þegar mannað vaktir

Í bréfinu sem sent var fyrir hönd fjölmargra veitingastaða segir að veitingamenn hafi þegar mannað vaktir á Þorláksmessu og keypt mikið magn aðfanga sem munu fara í súginn verði nýjum samkomutakmörkunum fylgt.

„Veitingastaðirnir hafa tekið við bókunum þennan dag sem erfitt er að breyta með þetta skömmum fyrirvara og ljóst að mikill undirbúningur og verðmæti munu fara forgörðum með tilheyrandi tjóni fyrir veitingamenn og óþægindum fyrir gesti.

Ljóst er að ekki er unnt að bregðast við nýjum sóttvarnareglum með svo skömmum fyrirvara án mikils tjóns fyrir viðkomandi staði,“ segir í bréfinu.

Er þess óskað að veitt verði undanþága frá nýrri sóttvarnareglugerð fram til aðfangadags, 24. desember 2021 til að lágmarka tjón veitingamanna sem hlýst af umræddri reglugerð.

Eftirfarandi veitingastaðir standa að beiðninni:

203 Club, Greifinn, Public House, Aktu Taktu, Grillmarkaðurinn, Ræktin, American Bar, Hamborgarafabrikan, Reykjavík Meat, American Bar, Hereford, Risið Vínbar, American Style, Himalayan Spice, ROK, Apótekið, Hornið, Röntgen, Arthur Kaffi og Vín, Hótel Borg, Rossopomodoro, Barion Bryggjan, Hressingarskálinn, Rub 23, Barion Mosfellsbæ, Húrra, Sæta Svínið, Bastard, Hús Máls & Menningar, Serrano, Bautinn, Húsavík Öl, Session Craft Bar, Betristofan, Iðnó, Shake&Pizza, Blackbox, Íslenska Flatbakan, Silfra, Bragginn, Íslenski Barinn, Sjáland Matur/Veisla, Bravó, Jungle Coctail Bar, Sjallinn, Brewdog Reykjavík, Kaffi Krús, Sjávargrillið, Bruggstofan & Honkytonk BBQ, Kaffi Laugalækur, Skál!, Brút Restaurant, Kaffibarinn, Skuggabaldur, Bryggjan Akureyri, Kaffibrennslan, Skúli Craftbar, Café Mílano, Kaldi Bar, Sólon, Catalina Hamraborg, Kastrup, Spot, Craft Burger Kitchen, Keiluhöllin,  Steikhúsið,  Culiacan, Kokteilbarinn, Strikið, Den Danske Kro, Kol, Subway, Dill Restaurant, Kringlukráin, Sumac,  Dillon, Krydd Veitingarhús, Sushi Corner, Dragon Dim Sum, Lebowski Bar, Sushi Social, Duck & Rose, Lóla Florens, Tapas Barinn, Einstök Bar, Luna Florens, The Coocoos Nest, Eldsmiðjan, Matarkjallarinn, The Drunk Rabbit Irish Pub, Enski Barinn, MatBar, The Irishman Pub, Eriksson Brasserie, Mathús Garðabæjar, The Laundromat Cafe, Fiskfélagið, Matur & Drykkur, Trygg Fjörukráin, Monkeys Reykjavík,  Veður, Flatey Pizza, Múlaberg Bistro & Bar, Vínstúkan 10 sopar, Forréttarbarinn, Nam, Von Mathús & Bar, Gaia Reykjavík, Nauthóll, Vor, Gamli Enski Hafnarfirði, Osushi, Yuzu, Gaukurinn, Óx, Öl og Grillstofan, GOTT, Pítan, Ölhúsið Grafarvogi, Götubarinn, Pítsugerðin Vestmannaeyjum, Ölhúsið Hafnarfirði, Græni Hatturinn, Prikið Kaffihús, Ölstofa Kormáks & Skjaldar, Ölverk Brugghús.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert