Styðja verkefni Kerecis í Egyptalandi

Ís­lenskt þorskroð get­ur, með rétt­ri meðhöndl­un, grætt al­var­leg sár með …
Ís­lenskt þorskroð get­ur, með rétt­ri meðhöndl­un, grætt al­var­leg sár með betri ár­angri en aðrar vör­ur sem þróaðar hafa verið í því skyni.

Framlag úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu verður nýtt til að styðja við samstarf lækningafyrirtækisins Kerecis og egypska Ahl Masr-sjúkrahússins um að nota íslenskt sáraroð við meðhöndlun alvarlegra brunasára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Samningur upp á 30 milljóna króna stuðning

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Guðmundur Fertram Sigurjónsson forstjóri Kerecis hafa undirritað samning um 30 milljóna króna stuðning ráðuneytisins úr Heimsmarkmiðasjóðnum við samfélagsverkefni Kerecis í Egyptalandi.

„Alvarleg brunaslys sem tengjast notkun á steinolíu við eldamennsku eru sorglega algeng í Egyptalandi og einn af hverjum þremur sem lenda á sjúkrahúsi vegna slíkra áverka deyr af sárum sínum,“ er haft eftir Guðmundi Fertram, stofnanda og framkvæmdastjóra Kerecis í tilkynningunni.

„Við trúum því að okkur vörur geti bjargað mannslífum og aukið lífsgæði þeirra sem slasast með þessum hætti. Þess vegna ætlum við að kenna egypskum læknum að nota íslenskt sáraroð í brunameðferðum og erum þakklát fyrir stuðning ráðuneytisins. Hann gefur verkefninu aukinn slagkraft, auk þess að vera okkur mikil hvatning til góðra verka.“

Í tilkynningunni segir að verkefnið falli vel að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, meðal annars markmiðum um heilsu og vellíðan, jafnrétti kynjanna, góðan atvinnu og hagvöxt og nýsköpun og uppbyggingu. Þá segir þar einnig að fyrir tveimur árum hafi Kerecis valið ákveðin markmið af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og að framgangur þeirra sé rekinn þvert á starfsemi fyrirtækisins.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, …
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Muni skipta sköpum fyrir fátæka sjúklinga

Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra, að framlag Kerecis skipti sköpum fyrir fátæka sjúklinga óháð kyni, aldri og efnahag en flestir brunasjúklingar í Egyptalandi eru konur og börn á leikskólaaldri.

„Bætt brunameðferð með íslensku sáraroði leiðir til þess að þau snúi fyrr aftur til náms eða vinnu auk þess sem langtíma færniskerðing og útlitslýti minnkar, sem aftur leiðir til aukinnar atvinnuþátttöku og minni útskúfunar. Þetta framlag Kerecis er því afar mikilvægt og stuðlar beinlínis að auknu jafnrétti. Ég hvet íslensk fyrirtæki til að leggjast á árar með okkur við að stuðla að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna með aðstoð Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífs um þróunarsamvinnu,“ sagði Þórdís Kolbrún við undirritun samningsins í gær.

Ahl Masr er góðgerðaspítali sem sérhæfir sig í meðhöndlun efnaminni sjúklinga, þeim að kostnaðarlausu. Kerecis veitir sérfræðingum Ahl Masr þjálfun og útvegar þeim lækningavörur.

„Verkefnið miðar einnig að því að efla nýsköpun, rannsóknir og þróun við notkun sáraroðs við brunameðferð í þróunarlöndum. Einnig verður unnið að því að þjálfa sérfræðinga sem geti annast kynningu og dreifingu á sáraroði til brunameðferð víðar í fátækari ríkjum heims í Afríku og Miðausturlöndum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert