Láta reyna á lögmæti einangrunar fyrir dómi

Arnar Þór Jónsson lögmaður flytur málin.
Arnar Þór Jónsson lögmaður flytur málin. mbl.is/RAX

Aðalmeðferðir í fimm málum gegn sóttvarnalækni fara fram á morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Málin snúast um lögmæti fyrirmæla sóttvarnalæknis um að skipa einkennalausum einstaklingum í einangrun á grundvelli jákvæðs PCR-prófs.

„Málin snúast um það að fólk, sem hefur greinst jákvætt á PCR-prófi og er einkennalaust, sé skikkað í einangrun. Verið er að láta reyna á það hversu langt sóttvarnalæknir getur gengið  gagnvart einkennalausu fólki. Þetta er gert til að knýja fram efnislega úrlausn um þann vísindalega grunn sem allar þessar aðgerðir stjórnvalda eru reistar á,“ segir Arnar Þór Jónsson, lögmaður þeirra sem málið sækja, í samtali við mbl.is.

Málin verða flutt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Málin verða flutt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Ljósmynd/Þór

Dæmt ólögmætt erlendis

Að sögn Arnars hefur reynt á gildi PCR-prófa fyrir dómstólum í Austurríki, Þýskalandi og Portúgal. Þar var komist að því að stjórnvaldsákvarðanir mætti ekki reisa á PCR-prófum. Því telur Arnar tímabært að láta reyna á þetta hérlendis.

„Að mínu viti er full ástæða til að láta reyna á þetta. Framkvæmdarvaldið á ekki að vera bremsu- og aðhaldslaust. Ég tel því nauðsynlegt að láta reyna á það hvar valdmörk sóttvarnalæknis liggja og hvert gildi þessara PCR-prófa er sem verið er að reisa þetta allt saman á. Þessi próf hafa verið talin ófullnægjandi grundvöllur frelsisskerðinga víða erlendis. Því er tímabært að láta að reyna á þetta hér.“

Arnar segir að vænta megi niðurstöðu dómsins ekki síðar en á þriðjudaginn.

Tvisvar hefur reynt á fyrir dómi hvort ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun Covid-smitaðra standist lög. Í báðum tilvikum var lögmæti ákvörðunar sóttvarnalæknis staðfest, annars vegar með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 23. október 2020 og hins vegar 13. apríl 2021. Þetta kemur fram í upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu.

Uppfært

Upphaflega stóð í fréttinni að þetta væri í fyrsta skipti sem látið væri reyna á einangrunarfyrirmæli sóttvarnalæknis hérlendis. Rétt er að tvisvar hefur reynt á þetta fyrir dómi. Leiðréttist það hér með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert