664 smit innanlands – fjórðungur smitaður

Röðin í sýnatöku í gær var löng í höfuðborginni.
Röðin í sýnatöku í gær var löng í höfuðborginni. mbl.is/Sigurður Bogi

664 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, þar af voru 255 í sótt­kví við grein­ingu. Þetta kem­ur fram á covid.is þar sem enn frem­ur kem­ur fram að alls hafi 672 smit greinst í gær, þar af átta smit á landa­mær­un­um. Er um met­fjölda smita inn­an­lands að ræða.

Áður höfðu mest greinst 493 smit inn­an­lands en það var á aðfangadag. Ný­gengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þúsund íbúa er 1171 og hefur það aldrei verið hærra.

Tek­in voru 3.505 sýni, þar af 2.244 ein­kenna­sýni. Alls voru 26,29% einkennasýna jákvæð en það er hæsta hlut­fall já­kvæðra ein­kenna­sýna síðan í júlí á síðasta ári en þá voru 30% ein­kenna­sýna já­kvæð.

4.174 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 6.187 í sótt­kví.

14 eru á sjúkra­húsi, þar af fimm á gjör­gæslu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert