Þungar áhyggjur af stöðu faraldursins

Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af stöðunni í faraldrinum.
Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af stöðunni í faraldrinum. mbl.is/Jón Pétur

Mönnun á Landspítala er mikil áskorun nú þegar um 100 starfsmenn eru frá vegna einangrunar og fjölmargir í sóttkví. Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af stöðunni en fordæmalaus fjöldi smita er að greinast á degi hverjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítala. 

Landspítali var í dag færður á neyðarstig vegna vaxandi álags.

Smit hafa nú bæði greinst meðal starfsmanna og sjúklinga, meðal annars á hjartagátt, bráðamóttöku og Landakoti. Greindust 23 starfsmenn í gær. Mikil vinna er nú fram undan í að rekja, skima og fyrirbyggja frekari smitdreifingu, ásamt því að taka sýni og greina þau.

Til að létta á álaginu er stefnt að því að flytja sjúklinga á aðrar heilbrigðisstofnanir. Standa vonir til að með þessu muni rýmkast um legurýmin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert