Ríkisráð kemur ekki saman

Ríkisstjórn Íslands á Bessastöðum í vetur.
Ríkisstjórn Íslands á Bessastöðum í vetur. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkisráð kemur ekki saman 31. desember 2021 eins og venja hefur verið undanfarna áratugi. Ástæðan er sú að í það minnsta þrír ráðherrar verða í einangrun um áramótin vegna kórónuveirusmits.

„Sú hefð að hafa fund í ríkisráði á gamlársdag hefur verið við lýði frá því að Kristján Eldjárn tók við embætti forseta Íslands. Á því hafa orðið þrjár undantekningar fram til þessa. Árið 1978 var ríkisráðsfundur haldinn degi fyrr og mun það hafa verið vegna þess að gamlársdag það ár bar upp á sunnudag. Árið 1980, á fyrsta ári Vigdísar Finnbogadóttur á forsetastóli, var fundur boðaður en honum frestað á síðustu stundu vegna spennu og vanda í stjórnarsamstarfi. Árið 1989 var ríkisráðsfundur haldinn laugardaginn 30. desember, aftur væntanlega svo að hann skaraðist ekki á við messutíma á sunnudegi. Æ síðan hefur ríkisráð komið saman á gamlársdag,“ segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands. 

Næsti fundur í ríkisráði verður boðaður á nýju ári en dagsetning verður ákveðin síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert