Úthlutar 200 milljónum til mannúðaraðstoðar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, úthlutar 200 milljónum …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, úthlutar 200 milljónum króna til mannúðaraðstoðar til landa þar sem þörfin er mikil. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið að úthluta 200 milljónum króna til mannúðaraðstoðar til Afganistan, Eþíópíu og Jemen. Að mati Sameinuðu þjóðanna hefur þörf á mannúðaraðstoð aldrei verið meiri og eykst dag frá degi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hefur verið falið að ráðstafa framlaginu Íslands. Báðar stofnanirnar eru áherslustofnanir Íslands í mannúðaraðstoð.

Helmingur Afgana glímir við fæðuóöryggi

Áætlað er að um 274 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda á næsta ári, tæplega fjörutíu milljónum fleiri en á árinu sem er að kveðja. Skýrist það meðal annars af aukinni fátækt, stríðsátökum, áhrifum loftslagsbreytinga og Covid-19 heimsfaraldrinum.

Afganistan, Jemen og Eþíópía eru meðal þeirra landa þar sem þörfin fyrir mannúðaraðstoð er mikil. Í Afganistan glímir yfir helmingur þjóðarinnar, eða 22,8 milljónir manna, við fæðuóöryggi og í Eþíópíu er áætlað að 9,4 milljónir þurfi á matvælaaðstoð að halda. Í Jemen hefur neyðarástand ríkt lengi, en stríðsátök hafa geisað í landinu frá árinu 2015. 

Þá eiga Afganistan, Eþíópía og Jemen það jafnframt sammerkt að milljónir manna á flótta innanlands eru sérstaklega berskjaldaðar og þarfnast brýnnar aðstoðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert