Fluttir á bráðadeild eftir hnífstungu

Alls eru níu vistaðir í fangaklefum lögreglunnar eftir nýársnótt.
Alls eru níu vistaðir í fangaklefum lögreglunnar eftir nýársnótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um þrjár tilraunir til hnífstungu í nótt en alls eru 125 mál skráð hjá lögreglunni frá 17:00 til 09:00. Tveir voru fluttir á bráðadeild eftir hnífstungu í Fossvoginum.

Alls eru níu vistaðir í fangaklefum lögreglunnar eftir nýársnótt, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Tilkynnt var um hnífstungu í Fossvoginum laust fyrir klukkan fimm í nótt. Tveir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en þeir eru ekki taldir í lífshættu. Árásarmaðurinn var vistaður í fangageymslu.

Klukkan fjögur í nótt var tilkynnt um mann sem hafði reynt að stinga annan með tveimur hnífum í miðbæ Reykjavíkur. Fórnarlambinu tókst að læsa sig inni þar til lögregla kom og handsamaði árásarmanninn.

Enn fremur var tilkynnt um einstakling vopnaðan hníf í Árbænum um hálf þrjú í nótt. Tveir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert