Körfuboltavöllur í Eyjum illa farinn eftir skottertur

Körfuboltavöllurinn við barnaskólann í Vestmannaeyjum.
Körfuboltavöllurinn við barnaskólann í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Slökkviliðið í Vestmannaeyjum

Eldur logaði á körfuboltavellinum við barnaskólann í Vestmannaeyjum í nótt. Útkall barst Slökkviliði Vestmannaeyja um eldinn og logaði í plastgrindum á vellinum þegar slökkviliðsstjóra og lögreglu bar að garði. 

Þetta kemur fram á facebooksíðu slökkviliðsins. 

„Greiðlega gekk að slökkva eldinn með handslökkvitækjum en ljóst er að skemmdir eru töluverðar. Upptök eldsins voru nokkuð greinileg en m.a. var búið að setja skottertu á völlinn sem hefur brunnið niður með þessum afleiðingum,“ segir í færslunni. 

Skotkaka hafði greinilega verið skilin eftir á vellinum.
Skotkaka hafði greinilega verið skilin eftir á vellinum. Ljósmynd/Slökkviliðið í Vestmannaeyjum

Þá segir að mikið vanti upp á að fólk gangi tryggilega frá skottertum eftir notkun og bleyti vel í þeim „en margir smáeldar loguðu á götum og gangstéttum um allan bæ í nótt, og þegar vindurinn blæs svona kröftuglega þá geta glæður borist töluvert langt með ófyrirséðum afleiðingum“.

Ljóst er á myndum frá slökkviliðinu að völlurinn er töluvert skemmdur eftir brunann.

Færslu slökkviliðsins má lesa hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert