100 verkefni – luku störfum klukkan 4

Björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast í gærkvöldi og í …
Björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir sinntu um 100 verkefnum vegna óveðurs í gærkvöldi og nótt eftir að fyrsta útkallið barst 22:17. Langflest útköllin voru á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum en björgunarsveitir voru einnig kallaðar út í Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum.

Ljósmynd/Landsbjörg

Um var að ræða fok á lausamunum eins og fiskikörum, ruslatunnum og jafnvel jólatrjám. Einnig þurfti björgunarsveitarfólk að koma böndum á grindverk, garðskúra, þakplötur og klæðingar á húsum. Eitthvað var um byggingaefni að fjúka á byggingasvæðum og vinnupalla sem færst höfðu úr stað, eins og mbl.is greindi frá fyrr í morgun.

Minna var þó um verkefni við hafnir eða í nálæð við sjó, að því er segir í tilkynningu.

Ljósmynd/Landsbjörg

Mesta álagið var milli ellefu og tvö í nótt, en upp úr klukkan tvö fór að hægja á tilkynningum og höfðu allir hópar sjálfboðaliða björgunarsveita lokið störfum um klukkan 4 í nótt.

Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert