Hreggviður stígur til hliðar vegna ásakana

Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas.
Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas. mbl.is/Árni Sæberg

Hreggviður Jónsson hefur ákveðið að stíga til hliðar í stjórn Veritas og stjórnum tengdra fyrirtækja vegna ásakana á hendur honum um kynferðislegt ofbeldi í garð ungrar konu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu hans vegna málsins.

Neitar að hafa gerst brotlegur við lög

Í yfirlýsingunni segist hann harma það að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem unga konan umrædda hefur skýrt frá og hefur verið fjallað um í fjölmiðlum en neitar sök í málinu.

„Það er afar þungbært að heyra um hennar reynslu. Ég lít þetta mál alvarlegum augum og þrátt fyrir að ég hafi ekki gerst brotlegur við lög þá mun ég stíga til hliðar úr stjórn Veritas og stjórnum tengdra fyrirtækja til að raska ekki þeirra mikilvægu starfsemi,“ er haft eftir honum í yfirlýsingunni sem lögmaður hans sendi fjölmiðlum rétt í þessu.

Stúlkan sem um ræðir er hin 24 ára gamla Vítalía Lazareva, sem nafngreindi bæði Hreggvið, Ara Edwald o.fl. á samfélagsmiðlinum Instagram síðla árs 2021 þar sem hún tjáði sig um kyn­ferðisof­beldi sem hún kvaðst hafa verið beitt í sum­ar­bú­staðarferð í des­em­ber 2020.

Ný­lega kom Vítal­ía fram í viðtali í hlaðvarpsþætt­in­um Eig­in kon­ur þar sem hún lýsti at­burðinum án þess þó að nafn­greina menn­ina sem hún sak­ar um að hafa brotið á sér. Ekki er ljóst hvað Hreggviður er sakaður um en í færslu sem Vítal­ía birti á In­sta­gram í októ­ber síðastliðnum er hann nefnd­ur á nafn ásamt Ara Edwald og tveimur öðrum mönn­um í tengslum við málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert