Vinnupallur sem fór af stað

Ljósmynd af umræddum vinnupalli.
Ljósmynd af umræddum vinnupalli. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur birt mynd af vinnupalli sem fór af stað í óveðrinu sem gekk yfir í gærkvöldi og í nótt.

Farið var af stað í nokkur útköll vegna vinnupalla.

Dælubílar slökkviliðsins fóru annars í átta verkefni síðasta sólarhringinn, auk sjúkraflutninga og Covid-flutninga.

„Nokkuð var um útköll vegna óveðurs í gærkvöldi og nótt en mesti þungi af þeim störfum sinntu björgunarsveitirnar eins og oft áður,“ segir á facebooksíðu slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert