Vísa rannsókn á blóðmerahaldi til lögreglu

MAST hefur vísað rannsókn á meintri illri meðferð á blóðtökuhryssum …
MAST hefur vísað rannsókn á meintri illri meðferð á blóðtökuhryssum til lögreglu. mbl.is/Árni Sæberg

Matvælastofnun hefur lokið rannsókn sinni á meðferð hryssna við blóðtöku hér á landi. Þá hefur stofnunin vísað málinu og þeim gögnum sem fyrir liggja til lögreglu til frekari rannsóknar og aðgerða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST.

Dýraverndarsamtökin neituðu að afhenda gögn

Stofnunin hóf rannsókn á málinu eftir að svissnesku dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TBZ) birtu myndband á Youtube 22. nóvember síðastliðinn sem sýndi illa meðferð á hryssum við blóðtöku hér á landi. 

Í tilkynningunni frá MAST segir að stofnunin hafi óskað eftir upplýsingum frá ofangreindum samtökum um hvar og hvenær myndböndin hafi verið tekin upp. Auk þess hafi stofnunin óskað eftir ókllipptu myndefni til að nota við rannsóknina.

Samtökin hafi svo svarað með opnu bréfi 1. desember sl þar sem þau höfnuðu því að afhenda óklippt efni og tilgreina tökustaði en hafi gefið upp tökudaga myndbandsins.

Leituðu skýringa frá meintum dýraníðingum

„Sérfræðingar Matvælastofnunar hafa farið ítarlega yfir myndbandið og greint þau atvik sem talin eru brjóta í bága við lög um velferð dýra og metið áhrif þeirra á hryssurnar,“ segir í tilkynningu MAST.

Þá hafi rannsókn stofunarinnar ennfremur leitt í ljós hvar atvikin áttu sér stað og hvaða fólk átti hlut í máli.

Við rannsóknina leitaði stofnunin eftir skýringum og afstöðu fólksins til þess sem fram kemur í myndböndunum. Eins og áður segir hefur stofnunin ekki aðgang að óklipptu myndefni sem takmarkar möguleika hennar á að meta alvarleika brotanna og gerir stofnuninni því ókleift að rannsaka málið til fullnustu“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert