1.191 smit innanlands

39 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Sjö eru á …
39 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID-19. Sjö eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

1.191 kórónuveirusmit greindust innanlands síðastliðinn sólarhring samkvæmt báðabirgða tölum frá almannavörum, en þau voru 926 sólarhringinn áður.

41 greindust á landamærunum. 

Unnið er að uppfærslu covid.is, upplýsingavefs almannavarna um heimsfaraldurinn og því bið eftir staðfestum tölum.

39 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19.  Sjö eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár.

Þá lést kona á níræðisaldri með Covid-19 í gær.

Fréttin verður uppfærð.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert