Sú sem lést vegna Covid-19 var á níræðisaldri

Kona á níræðis­aldri lést á Land­spít­al­an­um í gær af völd­um …
Kona á níræðis­aldri lést á Land­spít­al­an­um í gær af völd­um Covid-19. mbl.is

Einstaklingurinn sem lést á Landspítalanum í gær af völdum Covid-19 var kona á níræðisaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

Í dag liggja 39 ein­stak­ling­ar smitaðir af Covid-19 á Land­spít­al­an­um. Sjö eru á gjörgæslu, þar af fjórir í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár. 

8.521 sjúklingur er á Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.530 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju faraldursins, 30. júní 2021, hafa verið 309 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert