Vill ekki að faraldurinn fái að geisa frjáls

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir.
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir.

Ragnar Freyr Ingvarsson, sér­fræðing­ur í lyf- og gigt­ar­lækn­ing­um og fyrr­ver­andi yf­ir­maður Covid-göngu­deild­ar Land­spíta­lands, vill ekki að hætt verði alfarið að skima fyrir Covid-19 og leyfa faraldrinum að geysa frjálsum hér á landi, að því er hann greindi sjálfur frá á Facebook í dag.

Deilt um mikilvægi almennra Covid-skimana

Síðastliðinn sunnudag velti Ragnar upp þeirri spurningu hvort það sé nauðsyn­legt að halda áfram að fram­kvæma jafn mörg PCR-próf og hef­ur verið gert hér á landi og það á að mestu leyti frísku fólki sem hef­ur litla áhættu á því að veikj­ast al­var­lega, leggj­ast inn á sjúkra­hús eða lenda á gjör­gæsluHvort það væri mögu­lega nóg að prófa þá þá sem eru í áhættu­hóp­um og vakta þá sér­stak­lega.

Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar á Landspítala, er ósammála Ragnari hvað þetta varðar en í samtali við RÚV á sunnudaginn var sagði hann það ekki leysa vandann að sleppa faraldrinum lausum og hætta skimunum.

„Viðfangs­efnið hverf­ur ekk­ert þótt sé hætt að skima. Það yrði þá bara stjórn­laust. Ég hef enga trú á því að það væri leiðin fram á við,“ seg­ir Már við frétta­stofu RÚV.

Inntur viðbragða sagðist Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir heldur ekki telja neitt vit í því að hætta almennri sýnatöku vegna faraldursins og að prófa eingöngu þá sem eru í áhættuhópum, líkt og Ragnar lagði til.

„Ég er al­gjör­lega ósam­mála hon­um,“ sagði Þórólf­ur í sam­tali við mbl.is í gær.

Yfirvöld í öðrum löndum endurhugsi nálgun sína

Í færslu sem Ragnar birti á Facebook í dag segist hann skilja vel að Þórólfur og Már hafi tekið vangaveltur hans um að endurhugsa forgangsröðun varðandi skimanir fyrir Covid-19 óstinnt upp enda hafi sú aðferð gefist vel hingað til.

Það eru þó blikur á lofti og vert að athuga hvort þessi aðferð sé að bregðast okkur núna. Það lýsir sér með því hversu margir greinast utan sóttkvíar og hversu hátt hlutfall jákvæðra sýna er á degi hverjum,“ segir hann í færslunni.

Áréttar hann þó að vangaveltur sínar snúist um það hvort mögulega sé betra að færa fjármuni milli málaflokka og styrkja innviði heilbrigðiskerfisins betur.

Út á það gekk innlegg mitt á sunnudag. Ekki að hætta skimun eða láta faraldurinn geysa [sic] frjálst – það er fjarri lagi.“

Þá bendir hann á að yfirvöld í öðrum löndum séu farin að endurhugsa nálgun sína í baráttunni við faraldurinn.

Yfirvöld í Helsinki og 11 nærlægum bæjarfélögum eru að taka algera U-beygju í sinni nálgun. Kannski með fullróttækum hætti. En það verður spennandi að sjá hvernig þeim tekst til.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert