Jóhannes vildi ekki tjá sig

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem er ákærður fyrir að hafa nauðgað konu á nuddstofu sinni árið 2012, vildi ekki tjá sig um sakargiftir þegar skýrslutaka fór fram við aðalmeðferð málsins nú í morgun. Hann kvaðst hvorki hafa komið við brjóst eða kynfæri konu á óviðeigandi hátt. 

Þetta kemur fram í frétt á vef Rúv um málið. Athygli vekur að málið er opið en almennt eru kynferðisbrotamál lokuð. Réttarhaldið fer fram í Héraðsdómi Reykjaness.

Eins og mbl.is greindi frá í október, þá staðfesti Landsréttur úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­ness um að þing­haldið í saka­málinu yrði opið, en verj­andi Jó­hann­es­ar hafði farið fram á að málið færi fram fyr­ir lukt­um dyr­um.

Jó­hann­es var í janú­ar í fyrra dæmd­ur í fimm ára fang­elsi fyr­ir að hafa nauðgað fjór­um kon­um á meðferðar­stofu sinni á tíma­bil­inu 2009 til 2015. Landsréttur þyngdi síðan þann dóm í sex ár í nóvember sl. 

Málið sem hófst í morgun er annað mál þar sem hann er ákærður fyr­ir nauðgun með því að hafa tvisvar í janú­ar 2012 haft önn­ur kyn­ferðismök en sam­ræði við kon­u með því að hafa káfað á kyn­fær­um henn­ar, rassi og brjósti og sett fing­ur í leggöng henn­ar, henni að óvör­um. Er því um að ræða sam­bæri­lega ákæru og sett var fram í fyrra mál­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert