Jökull skipaður skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu

Jökull Heiðar Úlfsson nýr skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins,
Jökull Heiðar Úlfsson nýr skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins,

Jökull Heiðar Úlfsson hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra kjara- og mannauðssýslu ríkisins, sem fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild. Skipunin er til fimm ára. Frá þessu er greint á vefsíðu ráðuneytisins.

Jökull hefur yfir 20 ára reynslu af stjórnunarstörfum hjá Arion banka m.a. sem forstöðumaður mannauðs og forstöðumaður á þróunar- og markaðssviði. Þá hefur hann einnig reynslu af eigna- og sjóðastýringu sem forstöðumaður í eignastýringu Arion banka og sem framkvæmdastjóri Stefnis hf.

Að undanförnu hefur hann starfað sjálfstætt við ráðgjöf á sviði stefnumótunar, mannauðsmála og innleiðingu straumlínustjórnunar. Jökull er með cand. oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og námskeiði í stjórnun hjá INSEAD. 

Alls bárust 17 umsóknir um embættið en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Kjara- og mannauðssýsla ríkisins er ráðuneytisstofnun og er hluti af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild og er leiðandi við mótun mannauðs- og kjarastefnu fyrir ríkið og stofnanir þess og fylgir framkvæmd hennar eftir. Hlutverk KMR er að stuðla að framþróun í starfsumhverfi hjá ríkinu og að styrkja forsendur þess að veitt sé skilvirk og vönduð opinber þjónusta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert