Aðalmeðferð frestað og eiginmaðurinn laus allra mála

Taka átti málið fyrir í þessari viku en aðalmeðferð hefur …
Taka átti málið fyrir í þessari viku en aðalmeðferð hefur verið frestað fram í mars. mbl.is/Þorsteinn

Aðalmeðferð í máli gegn konu á sextugsaldri, sem sökuð er um að hafa nýtt sér bága stöðu heilabilaðra systra á tíræðisaldri í árabil og dregið af þeim tugmilljónir, hefur verið frestað um tvo mánuði vegna sóttvarnaráðstafana, en aðalmeðferðin átti að hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þá var þætti eiginmanns konunnar um peningaþvætti með því að hafa tekið við ávinningi af brotum konunnar, vísað frá dómi.

Rúv greindi frá því í dag að þætti eiginmannsins hefði verið vísað frá dómi og staðfestir Finnur Vilhjálmsson saksóknari í málinu það við mbl.is. Segir hann að þætti mannsins hafi verið vísað frá dómi án kröfu í lok ágúst eftir málflutning um þann þátt málsins. Ákæruvaldið hafi jafnframt unað þeim úrskurði. Málið í dag snúi því aðeins að konunni og meintum fjárdrætti hennar.

Gert var ráð fyrir 30 vitnum

Aðalmeðferð málsins átti að hefjast í morgun, en gert var ráð fyrir um 30 vitnum og að aðalmeðferð myndi standa yfir í þrjá daga. Ekkert varð þó að því, enda voru sóttvarnarreglur hertar í síðustu viku. Er málið nú komið á dagskrá dagana 22. til 24. mars.

Finnur staðfestir við mbl.is að ekki hafi orðið frekari breytingar á sakargiftum gegn konunni í meðferð málsins hingað til, en það var þingfest í júní árið 2020. Samkvæmt ákæru sem mbl.is hefur undir höndum er konan talin hafa dregið af systrunum fé, tekið lausa­fjár­muni þeirra ófrjálsri hendi, fengið syst­urn­ar til að út­búa erfðaskrá sem léti all­ar þeirra eig­ur renna til kon­unn­ar að frá­dreg­inni einni milj­ón króna við and­lát þeirra og fleira.

Fékk umboð til að annast fjármálin og ný erfðaskrá

Báðar systurnar glíma við heilabilun, en eldri syst­ir­in hef­ur um ára­bil verið háð ákærðu vegna versn­andi heilsu­fars og trúnaðarsam­bands við hana. Yngri syst­ir­in hef­ur dvalið á deild fyr­ir heila­bilaða frá ár­inu 2006. Vegna heila­bil­un­ar sinn­ar hef­ur hún verið ófær um að taka ákv­arðanir um fjár­mál sín um ára­bil og fékk ákærða umboð til að ann­ast fjár­mál henn­ar árið 2012.

Syst­urn­ar hafi verið nán­ar í gegn­um tíðina en þær eru báðar barn­laus­ar og ógift­ar og eiga sam­tals fimm íbúðir í fjöl­býl­is­húsi í Reykja­vík. Syst­urn­ar áttu enga skyldu­erf­ingja og höfðu áður gert sam­eig­in­lega erfðaskrá sem kvað á um að all­ar eig­ur þeirra skyldu renna í sjóð fyr­ir unga lista­menn. Síðar hafi ný erfðaskrá verið gerð þar sem kom fram að sú langlífari myndi erfa hina, en að þeim báðum látnum skyldu allar eignir systranna renna til konunnar, að frátalinni einni milljón króna.

Tæplega 80 milljóna króna fjárdráttur

Í ákæru málsins kemur fram að konan hafi á árunum 2012 til 2017 jafnframt tekið út 75 milljónir króna af reikningum yngri systurinnar í krafi fyrrnefnds umboðs. Var um að ræða 2.166 tilvik þar sem 23,3 milljónir voru notaðar í eigin þágu og fjölskyldu sinnar. Í kær­unni kem­ur fram að ákærða hafi til að mynda notað fjár­muni syst­ur­inn­ar til að greiða fyr­ir leigu­bílaþjón­ustu, fatnað í Hugo Boss, máltíð í Lux­em­borg og fleira. Í önnur 34 skipti voru samtals 52 milljónir teknar út í reiðufé eða með gjaldeyriskaupum.

Konan er jafnframt sökuð um að hafa látið eldri systurina greiða fyrir sig Visa-reikninga upp á tæpar fjórar milljónir, auk þess að hafa látið greipar sópa í íbúðunum fimm og farið með lausafjármuni, svo sem málverk, pels og fleira á eigið heimili.

Gerir ákæruvaldið meðal ann­ars kröfu um að hús­eign hjón­anna, Audi Q7-jeppi og list­mun­ir eft­ir Ásmund Sveins­son, Jó­hann­es Kjar­val og Ein­ar Jóns­son verði dæmd­ir upp­tæk­ir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert