Örmagna við Keili

Ljósmynd/Landsbjörg

Tilkynning barst til Neyðarlínu í 112 rétt fyrir klukkan 13 í dag frá örmagna göngumanni í grennd við Keili. Nú um klukkan 16:30 kom björgunarsveitarfólk með manninn að björgunarsveitarbílnum sem flytur hann til byggða ásamt félaga sínum.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg, að maðurinn hafi nánar tiltekið verið á ferðinni norðvestur af Keili í hrauninu við Höskuldarvelli og hafði verið á göngu við annan mann frá því fyrr í dag þegar hann varð örmagna af þreytu, en að öðru leiti óslasaður. Björgunarsveitir voru kallaðar út stuttu síðar til leitar að honum.

Ljósmynd/Landsbjörg

„Svæðið í kringum gönguleiðina að Keili er mjög gróft apalhraun og erfitt yfirferðar. Maðurinn var í lélegu símasambandi í grófu hrauninu og voru því skilyrði til leitar ekki með besta móti. Björgunarsveitarfólk hélt á svæðið úr tveimur áttum, hópar frá Grindavík, Vogum og Hafnarfirði. Rétt fyrir klukkan 15 voru mennirnir fundir þeim var komið fyrir í neyðarskýli og þeim gefin orka og hlúð að þeim örmagna. Maðurinn var óslasaður, orkulaus en að öðru leiti í ágætis ásigkomulagi. Búið var um hann í sjúkrabörum og hjóli komið undir þær, þar sem flytja þurfti hann 2 kílómetra leið að björgunarsveitarbíl,“ sagði í tilkynningu frá Landsbjörg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert