Tveir sóttu um embætti ríkislögmanns

Tvær umsóknir bárust forsætisráðuneytinu.
Tvær umsóknir bárust forsætisráðuneytinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvær umsóknir um embætti ríkislögmanns bárust forsætisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út þann 15. janúar síðastliðinn, að því er segir í tilkynningu. 

Umsækjendur eru þau Fanney Rós Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns, og Þórhallur Haukur Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður.

„Ríkislögmaður fer með rekstur dómsmála fyrir ríkið og stofnanir þess. Embættið sinnir einnig málflutningi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og EFTA-dómstólnum. Þá geta ráðherrar óskað lögfræðilegs álits ríkislögmanns um einstök málefni,“ segir í tilkynningunni.

Forsætisráðherra mun skipa í embættið til fimma ára frá 1. mars næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert