Aðeins fleiri létust í fyrra

Gjarnan er flaggað í hálfa stöng þegar fólk fellur frá.
Gjarnan er flaggað í hálfa stöng þegar fólk fellur frá. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Aðeins fleiri dóu að meðaltali vikulega á síðasta ári, eða 44,7, en árin 2017 til 2020 þegar 43,4 dóu að meðaltali vikulega. Þetta kemur fram í tilraunatölfræði Hagstofu Íslands.

„Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 90 ára og eldri yfir tímabilið 2017-2021. Tíðasti aldur látinna árið 2021 var 87 ár en sami aldursflokkur reyndist einnig vera tíðastur fyrir sömu vikur áranna 2017 til 2020,“ segir á vef Hagstofunnar. 

Þróun á vikulegri dánartíðni árin 2017-2021.
Þróun á vikulegri dánartíðni árin 2017-2021. Gröf/Hagstofan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert