Ert þú hjá dýrasta rafmagnssalanum?

Orkustofnun á að velja ódýrasta rafmagnssalann, m.a. samkvæmt listaverði. Verðið …
Orkustofnun á að velja ódýrasta rafmagnssalann, m.a. samkvæmt listaverði. Verðið er þó hærra fyrir þá sem eru fluttir af Orkustofnun en listaverð gefur til kynna og er því ekki um að ræða ódýrasta kostinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Fyrirtæki virðast geta athugasemdalaust farið framhjá 5. mgr. 7. gr. reglugerðar stjórnvalda, sem kveður á um að Orkustofnun velji rafmagnssala fyrir viðskiptavini sem ekki velja rafmagnssala sjálfir, sem dæmi þá sem flytja í nýtt húsnæði.

Reglugerðin er hugsuð á þann hátt að neytandinn sé færður til ódýrasta salans en svo virðist sem önnur sé raunin. 

„N1 rafmagn rukkar sína viðskiptavini um 75% meira en þeir segjast vera að gera,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, sem vakið hefur athygli á málinu.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, hefur vakið athygli á …
Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, hefur vakið athygli á núverandi fyrirkomulagi. Ljósmynd/Aðsend

Listaverð 6,44 krónur en rukkað um 11,16 krónur

Orkustofnun velur raforkusala m.a. fyrir fólk sem festir kaup á nýju húsnæði. Fyrir valinu verður líklega sá sem býður upp á lægsta auglýsta listaverðið, 6,44 krónur í boði N1 rafmagn. Þá er annað verð notað sem ekki er birt opinerlega þegar viðskiptin eru komin á, að sögn Berglindar.

„Það er spurning hver tilgangurinn er með reglugerðinni. Í öllu falli er hann ekki sá að láta þá sem velja ekki rafmagn fara á háan taxta,“ segir Berglind. Orkustofnun sér um framkvæmd reglugerðarinnar og hefur ekki breytt fyrirkomulaginu þrátt fyrir athugasemdir sem hafa borist.

Tillaga um breytingu á reglugerð fór í Samráðsgátt en ekkert gerst

Átta fyrirtæki selja raforku í beinni samkeppni til heimila og fyrirtækja; N1 rafmagn (Íslensk orkumiðlun), Fallorka, HS orka, Orka Heimilanna, Orka Náttúrunnar, Orkubú Vestfjarða, Orkusalan og Straumlind.

Í vor settu stjórnvöld fram tillögu að breytingu á reglugerðinni til þess að þróa hana áfram - umsagnir bárust en reglugerðinni var aldrei breytt. „Nú er Orkustofnun að vinna að nýjum leiðbeiningum á grunni upphaflegrar og gallaðrar reglugerðar sem í raun festa hana enn betur í sessi,“ segir Berglind.

Að lokum telur hún að vænlegast að neytendum sé gert auðveldara með að velja rafmagnssala og réttast væri að huga að hagsmunum neytenda og leyfa þeim að ákveða sjálfir við hvern þeir stunda viðskipti. Lesendur geta borið saman raforkuverð hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert