0,7% ökumanna óku of hratt á Breiðholtsbraut

Vöktunin á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Vöktunin á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd/Lögreglan

Brot 85 ökumanna voru mynduð við umferðareftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Breiðholtsbraut frá þriðjudegi fram til dagsins í dag, en fylgst var með ökutækjum sem ekið var Breiðholtsbrautina í austurátt á gatnamótum við Stekkjarbakka.

Á þessum tveimur sólarhringum fóru 12.712 ökutæki þessa akstursleið. Í tilkynningu lögreglunnar segir að þetta hafi því verið hlutfallslega fáir ökumenn sem óku of hratt, en þetta jafngildir um 0,7% þeirra sem fóru þarna um.

Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert