Semja um liðsauka fyrir Landspítala

Samið hefur verið við Lækningu í Lágmúla um mögulega tímabundna …
Samið hefur verið við Lækningu í Lágmúla um mögulega tímabundna mönnun. mbl.is/Jón Pétur

Sjúkratryggingar hafa samið um allt að 30 manna liðsauka til að styrkja mönnun tímabundið á Landspítala vegna Covid-19. Er samningurinn gerður við Lækningu í Lágmúla, en þetta er þriðji samningurinn sem gerður er í þessu skyni. Áður hafði verið samið við Klíníkina og Orkuhúsið.

Í tilkynningu frá Sjúkratryggingum kemur fram að samningarnir feli samtals í sér möguleika á auknum liðsstyrk 10 svæfingarlækna, 18 hjúkrunarfræðinga á sviði almennrar hjúkrunar og skurðstofu- og gjörgæsluhjúkrunar og 2 sjúkraliða á tímabilinu 10. - 28. janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert