Þrjú sóttu um stöðu við Mannréttindadómstólinn

Mannréttindadómstóll Evrópu.
Mannréttindadómstóll Evrópu.

Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu sem forsætisráðuneytið auglýsti laust til umsóknar fyrir jól, en umsóknarfrestur rann út 14. janúar. Umsækjendur um embættið eru Jónas Þór Guðmundsson hæstaréttarlögmaður, Oddný Mjöll Arnardóttir landsréttardómari og Stefán Geir Þórisson hæstaréttarlögmaður. Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins.

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.

Róbert Spanó, sem er núverandi fulltrúi Íslands við dómstólinn og jafnframt forseti hans, hefur gegnt embættinu síðustu átta ár, en skipun hans rennur út í lok október á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert