8 milljónir skjala birtar í stafrænu pósthólfi

Um 8 milljónir skjala voru birt í stafrænu pósthólfi í …
Um 8 milljónir skjala voru birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda á nýliðnu ári. AFP

Um 8 milljónir skjala voru birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda á nýliðnu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Öll gögn hins opinbera verði stafræn árið 2025

Á síðasta ári voru samþykkt lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Með þeim er fest í sessi sýn stjórnvalda um að meginboðleið samskipta við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað, gegnum stafrænt pósthólf á Ísland.is, að því er greint frá í tilkynningunni.

Unnið hafi verið áætlun um innleiðingu stafræna pósthólfsins fyrir stofnanir sem miði að því að árið 2025 geti einstaklingar og fyrirtæki nálgast öll helstu gögn frá hinu opinbera í pósthólfinu. Markmið laga um stafrænt pósthólf sé að bæta opinbera þjónustu, auka gegnsæi við meðferð mála og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og fyrirtækja. Þar að auki muni innleiðing laganna hafa jákvæð áhrif á umhverfið þar sem stafræn samskipti krefjist hvorki pappírsnotkunar né ferða á milli staða.

Ýmis gögn hins opinbera nú þegar orðin stafræn

Þá hafi nokkrir aðilar nú þegar hafið birtingu gagna í pósthólfinu en eins og áður hefur komið fram voru þar birt um 8 milljónir skjala á nýliðnu ári. Nefnd eru dæmi um aðila sem hafa nú þegar birt gögn í pósthólfinu en þeir eru Fjársýsla ríkisins, Reykjavíkurborg, Tryggingastofnun, lögreglustjóraembættin og Þjóðskrá. Dæmi um slík gögn séu svo launaseðlar opinberra starfsmanna, greiðsluyfirlit, sektarboð, álagningarseðlar og fasteignamat.

Í tilkynningunni segir að á fyrsta innleiðingarárinu verði það í forgangi að ljúka innleiðingu með þeim sem nú þegar hafa hafið birtingu í stafræna pósthólfinu. Jafnframt verði horft til þess að hefja innleiðingu hjá þeim aðilum sem eru tilbúnir til að tengjast stafræna pósthólfinu og þurfa að senda mikið magn gagna frá sér til einstaklinga og fyrirtækja.

Á árunum 2023 og 2024 sé svo gert ráð fyrir að röð stofnana í innleiðingu fylgi annars vegar skiptingu þeirra niður á ráðuneyti en hins vegar skiptingu sveitarfélaga eftir landshlutum.

Pósthólfið verður aðgengilegt í væntanlegu appi

Stafrænt Ísland hafi yfirumsjón með innleiðingu stafræna pósthólfsins í samvinnu við ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög. Hlutverk Stafræns Íslands sé að verkstýra innleiðingunni samkvæmt innleiðingaráætlun, veita ráðgjöf við tæknilega vinnu við að tengja upplýsingakerfi aðila við stafræna pósthólfið og leiðbeina aðilum varðandi notkun pósthólfsins. Hver aðili beri hins vegar ábyrgð á að forgangsraða sínu efni til birtingar í stafræna pósthólfinu ásamt innri vinnu við að koma efninu til birtingar.

Pósthólfið er aðgengilegt á Mínum síðum á Ísland.is og þá er væntanlegt app fyrir Ísland.is þar sem einnig verður unnt að nálgast pósthólfið.

Áætlun um stafræna birtingu af hálfu ríkisaðila og sveitarfélaga í stafrænu pósthólfi má nálgast á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert