Mikilvægt að hafa hraðar hendur í orkuskiptum

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Bæjarstjórn Fjarðabyggðar leggur á það þunga áherslu að unnið verði hratt að skilgreiningu og þróun nýrra kosti í raforkuframleiðslu,“ segir í ályktun bæjarstjórnarinnar sem samþykkt var á fundi í gær.

Jafnframt leggur bæjarstjórnin á það áherslu að ferli rammaáætlunar verði skýrt og hvaða orkukostir eru til nýtingar.

Um­hverf­is- og auðlindaráðuneytið og Orku­stofn­un sendu út neyðarkall til raf­orku­fram­leiðenda á Íslandi síðastliðinn þriðju­dag. Laut það að mögu­legri af­hend­ingu raf­orku á tíma­bil­inu 1. fe­brú­ar næst­kom­andi til 1. júní, um­fram það sem fram­leiðend­ur hafa skuld­bundið sig til að af­henda.

Segir í bréfi sem Orkustofnun sendi raforkuframleiðendum að um þess­ar mund­ir sé mik­il eft­ir­spurn eft­ir raf­orku, vatns­staða í miðlun­ar­lón­um vatns­afls­virkj­ana slæm og fram­leiðslu­geta skert hjá ein­stök­um fram­leiðend­um.

Skora á stjórnvöld

„Mikilvægt er að hafa hraðar hendur til að tryggja nægja orkuöflun og tefja ekki þau orkuskipti sem völ er á. Þannig að hægt verði að mæta þörfum innlends iðnaðar, svo sem fiskimjölsverksmiðja, sem og íbúum landsins,“ segir í ályktuninni.

„Þá er það ekki síður mikilvægt gagnvart framleiðslu á rafeldsneyti sem er mikilvægur þáttur í orkuskiptum og liður í aukinni verðmæta- og atvinnusköpun um land allt. Mikilvægt er að slík framleiðsla verði hér á landi og henni skapaðar þær aðstæður að hún verði samkeppnislega hagkvæm á alþjóðavísu.“

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar að lokum á stjórnvöld og stofnanir ríkisins að leggjast á eitt til að skapa áðurnefndar aðstæður og gera Íslandi kleift ljúka orkuskiptum sem fyrst og um leið efla hag lands og þjóðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert