Bjóða sig fram fyrir Samfylkingu í borginni

Sextán bjóða sig fram.
Sextán bjóða sig fram. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sextán einstaklingar eru í framboði á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í vor. Helgina 12.-13. febrúar fer fram flokksval þar sem frambjóðendur í efstu sætin fer fram. 

Þar á meðal eru sjö sitjandi borgarfulltrúar flokksins og tveir varaborgarfulltrúar en sjö ný nöfn bætast við.

Kosning í efstu sex sætin bindnandi en restinni stillt upp

Kosning í sex efstu sætin er bindandi fyrir uppstillingarnefnd að teknu tilliti til reglna flokksins um að ekki halli á hlut kvenna. Framboðsfrestur rann út á hádegi í dag en eftirfarandi einstaklingar eru í framboði:

  • Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður menningar, íþrótta- og tómstundaráðs 
  • Ólöf Helga Jakobsdóttir, veitingakona á Horninu
  • Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur og formaður Hallveigar
  • Sabine Leskopf, borgarfulltrúi, þýðandi, túlkur og háskólakennari
  • Sara Björg Sigurðardóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og formaður íbúðaráðs Breiðholts
  • Skúli Helgason, borgarfulltrúi og formaður skóla- og frístundaráðs
  • Stein Olav Romslo, stærðfræðikennari í Hagaskóla
  • Þorleifur Örn Gunnarsson, umsjónarkennari í Langholtsskóla
  • Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og formaður Íbúaráðs Árbæjar
  • Aron Leví Beck, borgarfulltrúi, byggingafræðingur, málarameistari og myndlistamaður
  • Birkir Ingibjartsson, arkitekt og úrbanisti
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Ellen Jaqueline Calmon, borgarfulltrúi 
  • Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga
  • Guðný Maja Riba, kennari í Breiðholtsskóla
  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs

Kosningarétt í flokksvalinu eiga flokksfélagar og skráðir stuðningsaðilar Samfylkingarinnar með lögheimili í Reykjavík, sem eru rétt skráðir þann 4. febrúar næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert