Fjölgar um tvo á spítala frá í gær

Þrír eru nú á gjörgæsludeild og allir í öndunarvél.
Þrír eru nú á gjörgæsludeild og allir í öndunarvél. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Alls liggja nú 37 á Landspítala með eða vegna kórónuveirunnar. Þrír eru á gjörgæslu og allir í öndunarvél.

Þetta kemur fram á vef spítalans.

Í eftirliti Covid-göngudeildar spítalans eru 9.130, þar af 3.221 barn.

Covid-sýktir starfsmenn í einangrun eða innlögn eru alls 187 talsins.

Í gær lágu 35 inni á Landspítala með eða vegna Covid-19 og fjölgar því um tvo milli daga á spítala. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert