1.558 smit innanlands – metfjöldi smita

Frá röð í sýnatöku.
Frá röð í sýnatöku. mbl.is/Kristinn Magnússon

1.558 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær og voru 52% í sótt­kví við grein­ingu. Þetta kem­ur fram á covid.is þar sem enn frem­ur kem­ur fram að alls hafi 1.610 smit greinst í gær, þar af 52 á landa­mær­un­um. 

Er um met­fjölda smita inn­an­lands að ræða en áður var mesti fjöld­inn 1.557 smit, sem greind­ust 30. desember.

Ný­gengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þúsund íbúa er 4.778.

Tek­in voru 8.578 sýni, þar af 5.259 ein­kenna­sýni. 

11.639 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 13.305 í sótt­kví.

40 eru á sjúkra­húsi, þar af þrír á gjör­gæslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert