Tveir Danir unnu tæpar 600 milljónir

Lottó
Lottó

Tveir Danir hlutu fyrsta vinning í Víkinglottó í kvöld. Fá þeir því hvor um sig vinning sem hljóðar upp á tæpar 640 milljónir króna.

Enginn var aft­ur á móti með ann­an vinn­ing, sem voru rúmar 42 millj­ón­ir króna.

Tveir Íslendingar unnu þriðja vinning kvöldsins og fá hvor um sig rúma eina milljón króna. Voru þeir miðar keyptir á bensínstöð N1 við Hringbraut og í Lottó appinu.

Þrír Íslend­ing­ar voru með fjór­ar rétt­ar töl­ur í Jóker. Einn keypti miðann í Vídeómarkaðinum í Hamraborg, einn í Lottó appinu og var sá síðasti í áskrift. Fær hver um sig hundrað þúsund krón­ur fyr­ir vikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert