Loka fyrir heitt vatn í Kópavogi og Garðabæ

Svæðið sem lokunin nær til.
Svæðið sem lokunin nær til. Kort/Veitur

Ekkert heitt vatn er framleitt á Nesjavöllum sem stendur. Hefur heildarframleiðslugeta á heitu vatni fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins skerst um 30%, af þessum sökum, eftir að bilun kom upp í Nesjavallavirkjun í morgun.

„Við bilunina kom högg á dreifikerfi hitaveitunnar með þeim afleiðingum að leki kom að annarri Reykjaæðinni en þær flytja heitt vatn frá Mosfellsbæ til borgarinnar. Hitaveitugeymar á Reynisvatnsheiði hafa því sem næst tæmst í morgun,“ segir í tilkynningu frá Veitum.

Af þessum sökum þurfi að loka fyrir heitt vatn í Lindum, Smára og vesturbæ Kópavogs og í Garðabæ, utan Urriðaholts og Holtsbúðar, frá kl. 14 til 18 í dag.

Hvetja fólk til að spara heita vatnið

Tekið er fram að í morgun hafi verið gripið til fjölmargra aðgerða.

„Búið er að færa fjölda hverfa á höfuðborgarsvæðinu, sem fengu vatn frá virkjunum, yfir á vatn úr borholum á lághitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ. Hellisheiðarvirkjun er keyrð á fullum afköstum,“ segir í tilkynningunni.

„Unnið er markvisst að því að koma framleiðslu heits vatns í virkjuninni í gang. Viðgerðum í virkjuninni, sem áætlað er að taki nokkra daga, verður hagað þannig að sem minnst truflun verði á framleiðslu heits vatns.

Veðurspá gerir ráð fyrir kuldatíð næstu daga og má því búast við að notkun á heitu vatni verði mikil. Fólk er hvatt til að fara einstaklega sparlega með heita vatnið og hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að tapa ekki varma úr húsum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert