Skipar ráðgjafanefnd með rafrænum íbúakosningum

Nefndin skal vinna að tillögum um fyrirkomulag og umgjörð rafrænna …
Nefndin skal vinna að tillögum um fyrirkomulag og umgjörð rafrænna kosninga. AFP

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað ráðgjafanefnd með rafrænum íbúakosningum á vegum sveitarstjórna. 

Verkefni ráðgjafanefndarinnar verður að fylgjast með framkvæmd rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár og tengdum verkefnum. Nefndin skal vinna að tillögum um fyrirkomulag og umgjörð rafrænna kosninga í nánu samráði við ráðuneytið og Þjóðskrá Íslands. 

Í nefndina skipar innviðaráðherra einn samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvo án tilnefningar. Ráðherra skipar þar af formann nefndarinnar. Þrír varamenn eru skipaðir með sama hætti. Í nefndinni sitja:

  • Elín Sif Kjartansdóttir, sérfræðingur í netöryggi hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti og jafnframt formaður
  • Sigurður Helgi Sturlaugsson, hugbúnaðarstjóri hjá Umbru
  • Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga (tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga) 

Varamenn eru: 

  • Hanna Dóra Hólm Másdóttir, sérfræðingur hjá samgöngu og sveitarstjórnarráðuneyti 
  • Daníel Reynisson verkefnastjóri hjá Umbru 
  • Kristín Ólafsdóttir, lögfræðingur á lögfræði- og velferðarsviði Sambands íslenskra sveitarfélaga (tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.)

Ráðgjafanefndin er skipuð í samræmi við gildandi sveitarstjórnarlög. Ekki hefur verið haldin íbúakosning hjá sveitarfélagi á grundvelli 107. gr. sveitarstjórnarlaga síðan árið 2018. 

Með nefndinni starfa sérfræðingar í Stjórnarráðinu og Þjóðskrá Íslands. Skipunartími nefndarinnar er til 31. maí 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert