Hellisheiði lokað vegna fastra bíla

Svona er umhorfs á Hellisheiði. Veðurstofan er með í gildi …
Svona er umhorfs á Hellisheiði. Veðurstofan er með í gildi gular veðurviðvaranir á Suðvesturlandi sem og á Suðurlandi til kl 16:00 í dag. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegagerðin greinir frá því að vegurinn yfir Hellisheiði sé lokaður vegna veðurs og fastra bíla. Þrengslin eru einnig lokuð. Bent er á hjáleið um Suðurstrandarveg (427) um Grindavík. Að sögn Veðurstofu Íslands er gul viðvörun í gildi fyrir landið sunnan- og vestanvert, m.a. á höfuðborgarsvæðinu. 

Búast má við snjókomu nokkuð víða um land í dag. Sums staðar verða erfið akstursskilyrði og færð gæti mögulega spillst, segir í spá Veðurstofunnar. 

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert