„Bara ráðherrar sem ræða þetta“

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir flokkinn hafa kallað eftir því allan faraldurinn að þingið ætti meiri aðkomu að mótun sóttvarnaaðgerða. Frumvarp flokksins um breytingu á sóttvarnalögum geti tryggt aukna sátt um aðgerðir.

Þing­flokk­ur Viðreisn­ar hef­ur lagt fram frum­varp til breyt­inga á sótt­varna­lög­um, eins og mbl.is greindi frá í gær. Breyt­ing­in snýr að því að vald ráðherra til að grípa til sótt­varnaaðgerða verði temprað þannig að eft­ir­far­andi samþykki Alþing­is sé áskilið.

Gengur ekki upp að mati Viðreisnar

Um er að ræða viðbót­ar­máls­grein við 18. grein lag­anna. Með henni yrði gerð krafa um að þegar far­sótt hef­ur varað leng­ur en í þrjá mánuði og ráðherra hef­ur sett reglu­gerð um op­in­ber­ar sótt­varn­aráðstaf­an­ir, sé sú reglu­gerð sem og frek­ari ákv­arðanir born­ar und­ir þingið inn­an tveggja vikna í formi þings­álykt­un­ar­til­lögu.

„Þegar faraldurinn er búinn að ganga svona lengi, og mannréttindi fólks eru undir, þá gengur ekki upp, að okkar mati, að lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafi enga aðkomu að ákvarðanatökunni,“ segir Sigmar í samtali við mbl.is.

Fleiri talað fyrir breytingum

Fleiri þingmenn og þingflokkar hafa talað fyrir þessum breytingum, að sögn Sigmars.

Umræður um efnahagsráðstafanir vegna Covid-19 voru í gangi á þinginu á þeim tíma sem frumvarp Viðreisnar var unnið.

„Það kom okkur svolítið skemmtilega á óvart að þá talaði Bjarni Benediktsson einmitt um að svona fyrirkomulag þætti honum gott, að þingið kæmi að þessu með því að málið yrði lagt fram í formi þingsályktunartillögu.“

Þinginu jafn treystandi

Sigmar segir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt til að sóttvarnaraðgerðir færu fyrir velferðarnefnd en það teldi Viðreisn ekki fullnægjandi.

„Núna eru þetta bara ráðherrar sem ræða þetta og með því að leggja málið fyrir velferðanefnd yrði það einungis til upplýsingar og umræðu.“

Kosturinn við þingsályktunartillöguna sé að þá hafi þingið raunverulega aðkomu að málinu.

„Þinginu er alveg jafn treystandi til þess að leggja mat á þetta og ráðherra, það eru náttúrulega pólitíkusar í ríkisstjórninni alveg eins og það eru bara pólitíkusar á þingi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert