Fólkið hefur komist úr flugvélinni af sjálfsdáðum

Frá vettvangi sunnan við Þingvallavatn.
Frá vettvangi sunnan við Þingvallavatn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leit með kafbáti í Þingvallavatni seinni partinn í dag hefur leitt í ljós að enginn þeirra fjögurra sem í vélinni voru eru nú inni í flakinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar.

„Því hefur svæðisstjórn björgunarsveita hafist handa við að skipuleggja áframhaldandi leit í og við vatnið á morgun,“ segir í tilkynningunni.

Fjörur voru gengnar þar í dag og eru síðustu hópar um það bil að klára sín verk nú um tíuleytið án þess að það hafi borið árangur.

Ljóst er að fólkið hefur komist úr vélinni af sjálfsdáðum eftir að hún lenti í vatninu en slysstaðurinn er um einn km frá landi þar sem styst er.

Leitarhópar hafa verið boðaðir til leitar á morgun á og við vatnið eftir nánara skipulagi svæðisstjórar björgunarsveita.

Ljóst er að ef það ber ekki árangur verður ekkert að hafst þar á mánudag og að líkindum lítið á þriðjudag vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert