Stefna á að hífa flugvélina á föstudag

Unnið var að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða í dag.
Unnið var að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða í dag. mbl.is/Óttar

Viðbragðsaðilar gera ekki ráð fyrir að hífa upp flugvélina sem fórst í Þingvallavatni fyrr en seinni part föstudags. Mögulega verður þó kafað að flakinu á morgun, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Uppsetning vinnubúða vegna björgunaraðgerðanna fór fram í dag en þær eiga að hefjast á morgun. Gert er ráð fyrir að allir þeir sem koma að björguninni verði tilbúnir á vettvangi klukkan níu í fyrramálið.

Jafnþrýstiklefi og fjarskiptabíll á vettvangi

Búið er að koma upp tjaldbúðum með aðstöðu fyrir björgunarmenn en á vettvangi verður meðal annars gámur með jafnþrýstiklefa fyrir kafara og fjarskiptabíll Landsbjargar sem er ætlaður til sérhæfðra fjarskipta. 22 kafarar koma að aðgerðinni, átta frá Land­helg­is­gæsl­unni, sex frá lög­reglu og átta frá slökkviliði.

Aðgerðin sem um ræðir er mikið nákvæmnisverk og hafa síðustu dagar verið nýttir til ítarlegs undirbúnings, að því er fram kemur í tilkynningunni. Veðurspáin er hliðholl en náist ekki að tryggja öryggi kafara verður aðgerðum frestað.

Í tilkynningu lögreglu kemur einnig fram að Þingvallaþjóðgarður sé á heimsminjaskrá og í Þingvallavatni sé viðkvæmt lífríki sem þarf að vernda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert