Annar maður handtekinn vegna skotárásar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið annan karlmann vegna rannsóknarinnar á skotárás í Grafarholti í nótt. Annar var handtekinn í morgun í húsnæði við Miklubraut, en hinn var handtekinn eftir hádegi. Í tilkynningu frá lögreglu er ekki nánar greint hvar hann hafi verið handtekinn, annað en að það hafi verið í umdæmi lögreglunnar.

Mennirnir eru á þrítugsaldri. Þá hefur verið lagt hald á ökutæki og skotvopn, sem lögreglan telur að hafi verið notað við verknaðinn. Embættið hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir vegna þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert