Viðbúnaðurinn á Miklubraut tengist skotárásinni

Viðbúnar var á Miklubraut vegna skotárásarinnar.
Viðbúnar var á Miklubraut vegna skotárásarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikill viðbúnaður lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra á Miklubraut í morgun tengist skotárás í Grafarholtinu á fjórða tímanum í nótt. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, í samtali við mbl.is.

„Þessi handtaka seinna í nótt var í tengslum við þessa skotárás,“ segir Grímur en í tilkynningu frá lögreglunni segir að karlmaður hafi verið handtekinn miðsvæðis í borginni vegna málsins.

Skotið var á karl og konu sem voru stödd ut­an­dyra í Grafarholti í nótt. Þau voru flutt á slysa­deild þar sem gert var að sár­um þeirra, en eru ekki í lífs­hættu.

Grímur vill ekki segja til um hvort tengsl eru á milli árásarmannsins og fórnarlambanna.

Lögreglan þurfti ekki að beita skotvopnum við aðgerðina og Grímur tekur fram að almenningi sé engin hætta búin vegna málsins, en rannsókn þess er á frumstigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert