Vilja kaupa eign á 460 milljónir vegna Borgarlínu

Knarrarvogur 2.
Knarrarvogur 2. mbl.is/Unnur Karen

Óskað var eftir því á fundi borgarráðs í morgun að samþykkt yrðu kaup á fasteign í Knarrarvogi 2 fyrir 460 milljónir króna til niðurrifs til að rýma fyrir Borgarlínu. Sjálfstæðisflokkurinn greiddi atkvæði gegn kaupunum og var málið því ekki afgreitt á fundi borgarráðs í morgun, en fer þess í stað til borgarstjórnar á þriðjudag.

Fram kemur í bókun Sjálfstæðisflokksins vegna málsins að fjárfestingin sé ekki á fjárhagsætlun borgarinnar. Þá skjóti það skökku við að Reykjavík verji hálfum milljarði af skattfé borgarbúa í kaupin, þar sem málefni Borgarlínu séu í sérstöku félagi sem heitir Betri samgöngur ohf.

Í greinargerð vegna kaupanna, sem lögð var fyrir borgarráð, kemur þó fram að gert verði ráð fyrir kaupunum innan gildandi fjárfestingarætlunar.

Lóðarhafi og eigandi fasteigna í Knarrarvogi 2 er Nýja sendibílastöðin hf. og hefur hluthafafundur félagsins samþykkt kauptilboð borgarinnar, að fram kemur í greinargerðinni.

Tilboðið meira en 100 milljónum yfir verðmati

„Þetta kom okkur verulega á óvart. Þetta kom inn á dagskrá borgarráðs í morgun, en þetta hefur ekkert verið rætt og er ekki á fjárhagsáætlun,“ segir Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í samtali við mbl.is. „Þarna er borgin að kaupa fyrir hálfan milljarð húsnæði á yfirverði, en samt sem áður er félag sem á að sjá um þetta sem heitir Betri samgöngur,“ bætir hann við.

Reykjavíkurborg telur nausynlegt að eignast fasteignirnar til að greiða leið …
Reykjavíkurborg telur nausynlegt að eignast fasteignirnar til að greiða leið Borgarlínu. Teikning/Borgarlínan

Vísar Eyþór til þess að samkvæmt verðmati tveggja fasteignasala er áætlað söluverð eignarinnar töluvert lægra en það kauptilboð sem Reykjavíkurborg hefur gert núverandi eigendum. En það hljóðar upp á 460 milljónir, líkt og áður sagði. Samkvæmt verðmati er söluverð eignarinnar hins vegar á bilinu 330 til 345 milljónir.

Nauðsynlegt að eignast fasteignirnar

Í greinargerðinni segir að samningateymi Reykjavíkur og lóðarhafa og landeigenda vegna Borgarlínu hafi verið í viðræðum við eigendur fasteigna að Knarrarvogi 2 og Suðurlandsbraut 75 með það að markmiði að Borgarlína komist leiðar sinnar óháð annarri umferð. 

Núverandi hugmyndir geri ráð fyrir því að Borgarlína liggi á milli lóða við Sævarhöfða og þaðan yfir í Vogabyggð á svæði við Knarrarvog 2. Til að tryggja þá aðkomu sé talið nauðsynlegt að Reykjavíkurborg eignist þær fasteignir sem standa á lóð Knarrarvogs.

„Maður hefur séð að það er fara gríðarlegur peningur í undirbúning á borgarlínu á meðan strætó hefur haft úr minna að moða. Síðan er verið að bæta í hálfum milljarði á einum morgunfundi,“ segir Eyþór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert