Réttarhöld hafin vegna skotárásar á Egilsstöðum

Frá vettvangi skotmálsins í Dalseli á Egilsstöðum.
Frá vettvangi skotmálsins í Dalseli á Egilsstöðum. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson

Aðalmeðferð í máli héraðssaksóknara gegn karlmanni sem ákærður er fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra hófst í morgun. Lögreglan skaut manninn í aðgerðum sínum. Maðurinn mætti fyrir héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum í morgun, en skýrslutökur fara nú fram.

Í skotárás­inni fór maður­inn vopnaður hagla­byssu og riffli á heim­ili ann­ars manns í götunni Dalseli sem hann leitaði að. Sá maður hafi hins veg­ar ekki verið heima þegar bys­su­m­ann­inn bar að garði. Heim­ild­ir herma þó að börn manns­ins hafi verið heima og flúið þar sem þeim stóð ógn af bys­su­m­ann­in­um sem hafði skotið á rúðu í hús­inu á móti áður en lög­regl­an kom á staðinn. 

Fjöldi íbúa í Dal­seli varð var við skotárás­ina sem stóð yfir í rúm­an hálf­tíma að sögn vitna. Minnst einn varð vitni að því þegar bys­sumaður­inn var skot­inn í aðgerðum lög­reglu.

Að sögn sjón­ar­vott­ar skaut lög­regl­an bys­su­m­ann­inn í kviðinn eft­ir að hann neitaði að leggja niður vopn sín. Maður­inn var svo flutt­ur til aðhlynn­ing­ar í Reykja­vík með sjúkra­flugi. Var hann á gjör­gæslu fyrst um sinn en var svo flutt­ur á al­menna deild.

Héraðsdómur Austurlands. Mynd úr safni.
Héraðsdómur Austurlands. Mynd úr safni. mbl.is/Gúna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert