Upplýsingar um að Úkraína sé talin öruggt upprunaríki voru teknar af heimasíðu Útlendingastofnunar strax að morgni fimmtudagsins 24. febrúar í ljósi frétta næturinnar.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en þar segir að Útlendingastofnun beri lögum samkvæmt ábyrgð á lista öruggra upprunaríkja og því var það þeirra ákvörðun að taka landið af listanum.
Ekki hefur verið lagt sérstakt mat á ástandið í landinu þar sem algjör óvissa er um hvernig aðstæður þróast. Gert er ráð fyrir að lagt verði mat á aðstæður í Úkraínu eftir því sem atburðum vindur fram og fregnir berast af ástandi í landinu.